Sjálfbærar viðarperlur úr íslenskum skógum, hentugar sem undirburður fyrir dýr og hreint eldsneyti.

  • Viðarperlur, 6 mm í þvermál, framleiddar úr völdu úrvalshráefni úr íslenskum smáviði, lerki, furu og greni ásamt hreinum afgangsviði af ýmsum tegundum. Framleiddar án íblöndunar annarra efna og innihalda engin auka- eða bindiefni. Pakkaðar í 15 kg pappírspoka sem brotna auðveldlega niður í náttúrunni. Rakainnihald er um 10%, sem tryggir góða rakadrægni og góðan ilm.

  • Lerki er þekkt fyrir náttúrulega sótthreinsandi eiginleika. Viðurinn inniheldur kvoðu og olíur sem geta hamlað vexti baktería, sveppa og veira og hjálpað til við að draga úr ólykt í umhverfi dýra.

    Lerki hefur einnig mikla mótstöðu gegn vatni og kemískum efnum, sem gerir perlurnar sérstaklega hentugar í stíur, bása og hesthús þar sem þær stuðla að hreinna og heilnæmara umhverfi.

    Pakkað í 15 kg pappírspoka. Engin auka- eða bindiefni. Rakainnihald um 10%, mikil rakadrægni og góður ilmur.

  • Gæða eldiviður unninn úr íslenskum grisjunarviði. Viðurinn er þurrkaður og pakkaður í 40 L poka til að tryggja góða brennslu. Hver poki er merktur eftir tegund – greni, lerki eða blandað. Eldiviður í hentugri stærð sem hentar sérstaklega vel í lokuð eldstæði og veitir jafna og góða hitun.

Vörur

Þú færð Ilm hjá
eftirfarandi söluaðilum